Unnið að snjómokstri á stígum og íbúðagötum

Svona er staðan í mörgum íbúðagötum í dag. Unnið er að því að hreinsa bæinn áður en frystir.
Svona er staðan í mörgum íbúðagötum í dag. Unnið er að því að hreinsa bæinn áður en frystir.

Aðstæður til snjómoksturs hafa verið krefjandi í vikunni. Snjóað hefur býsna mikið á sama tíma og hitastig hefur rokkað, hlýnað yfir daginn og myndast slabb á götum og stígum.

Ekki er gott að láta snjómoksturstæki vinna á frost- og klakalausu malbiki því hætt er við skemmdum, t.d. á vélum og kantsteinum. Þar af leiðandi hefur þótt nauðsynlegt að takmarka moksturinn að mestu við stofnbrautir, stofnstíga og tengibrautir.

Í dag er ástand í íbúðagötum hins vegar víða orðið erfitt og þar sem von er á frosti næstu daga er settur aukinn kraftur í snjómoksturinn. Markmiðið er að hreinsa sem allra mest af illfærum íbúðagötum og stígakerfinu áður en frystir aftur til að koma í veg fyrir að slabbið verði að klaka og ís.

Íbúar eru beðnir um að sýna þessu ástandi þolinmæði. Engum finnst gaman að sitja fastur í illfærri götu eða vaða slabb upp að hnjám, en allir eru að gera sitt besta og munum að vorið er á næsta leyti.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan