Umsóknarfrestur vegna Barnamenningarhátíðar rennur út á morgun

Frestur til að sækja um styrk vegna fyrirhugaðra verkefna eða viðburða á Barnamenningarhátíð 2021 á Akureyri rennur út á miðnætti á morgun, miðvikudaginn 9. desember.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri sem er að finna HÉR.

Nánari upplýsingar um Barnamenningarhátíð á Akureyri 2021 á barnamenning.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan