Töfrateppið slær í gegn og brúar kynslóðabilið

Það er enn skemmtilegra en áður að fara upp með töfrateppinu.
Það er enn skemmtilegra en áður að fara upp með töfrateppinu.

Það var mikið líf og fjör á skíðasvæðinu í Hliðarfjalli um hátíðarnar. Um 6.500 manns komu í fjallið og nutu hressandi útiveru í fallegu en á köflum ansi köldu veðri.

Nýja yfirbyggingin á Töfrateppinu sló rækilega í gegn og var áberandi að nú renndu fleiri fullorðnir sér í brekkunni þar en oft áður. Því má segja að yfirbyggingin hafi afmáð allt kynslóðabil og skemmta ungir sem aldnir sér hið besta saman í þessari skemmtilegu braut sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Lýsingin í yfirbyggingunni gefur Töfrateppinu skemmtilegan blæ og öðruvísi stemningu þegar litbrigðin breytast.

Hlýindi í byrjun þessarar viku hafa sett strik í reikninginn fyrir útivist í Hlíðarfjalli en það er kuldi í kortunum og starfsfólk Hlíðarfjalls telur þónokkuð góðar líkur á að staðan batni enn frekar um eða upp úr næstu helgi þótt spáin geti auðvitað breyst til hins verra, þ.e.a.s. með áframhaldandi hláku. „Við viljum snjó, stillur og kulda!“ kyrja þau á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan