Tillaga að Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024 ásamt umhverfisskýrslu var auglýst í júní 2013 í samræmi við
ákvæði 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með athugasemdafresti til 23. ágúst 2013.
Að svæðisskipulaginu standa Grýtubakkahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Dalvíkurbyggð og
Fjallabyggð.
Tillagan ásamt fylgigögnum er aðgengileg á skrifstofum og vefsíðum hvers aðildarsveitarfélags og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,
Reykjavík.
Vegna minni háttar ágalla á birtingu skipulagstillögunnar á vefsíðum nokkurra viðkomandi sveitarfélaga er athugasemdafrestur framlengdur til
föstudagsins 30. ágúst 2013.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við tillöguna áður en framlengdur athugasemdafrestur er
útrunninn.
Athugasemdum skal skila skriflega til:
Teiknistofu arkitekta, Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf.,
Kaupangi við Mýrarveg,
600 Akureyri.
Eyjafjarðarsveit 12. ágúst 2013.
Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar