Tillaga að deiliskipulagi Borgarbraut – Vestursíða og breyting á deiliskipulagsmörkum Giljahverfis

Borgarbraut - Vestursíða
Borgarbraut - Vestursíða

Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

Skipulagssvæðið afmarkast af Vestursíðu í austri, Bröttusíðu í norðri, Bugðusíðu í suðri og af núverandi og fyrirhugaðri Borgarbraut í vestri. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir lengingu Borgarbrautar að Bröttusíðu, hljóðmönum og byggingarreitum fyrir bílgeymslur við Vestursíðu.

Eldri deiliskipulög á svæðinu fyrir Vestursíðu 10-38 frá 1989 og Vestursíðu 1-8 frá 1991 verða felld úr gildi.

Samhliða er gerð breyting á deiliskipulagi Giljahverfis og skipulagsmörk samræmd.

Borgarbraut - Vestursíða - Greinargerð

Borgarbraut - Vestursíða - Skipulagsuppdráttur

Borgarbraut - Vestursíða - Húsakönnun

Giljahverfi - Breytingaruppdráttur

Hljóðvist

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð, umhverfisskýrslu og húsakönnun  mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 11. júlí til 22. ágúst 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 22. ágúst og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

 

11. júlí 2012

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan