Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018.

Breytingin felur í sér að þéttbýlismörk ofan byggðar á Akureyri, verða færð ofar þannig að meginhluti landnotkunnarreita verði innan þeirra. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, hverfisverndarsvæði á Glerárdal og vatnsverndarsvæði verða utan þess.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 17. október til 28. nóvember 2012 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér að neðan:

Þéttbýlisuppdráttur, núverandi staða

Sveitarfélagsuppdráttur, núverandi staða

Þéttbýlisuppdráttur, drög að breytingu

Sveitarfélagsuppdráttur, drög að breytingu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 28. nóvember 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

                                                  17. október 2012
                                                  Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan