FYRSTA áætlunarflug Grænlandsflugs milli Kaupmannahafnar og Akureyrar var í gær og var vel tekið á móti áhöfn og farþegum í Boeing-þotu félagsins við komuna til Akureyrar en sérstök móttökuathöfn var á Akureyrarflugvelli af þessu tilefni. Fulltrúar grænlensku heimastjórnarinnar, stjórnendur Grænlandsflugs, Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra voru á meðal farþega í þessu fyrsta flugi frá Kaupmannahöfn til Akureyrar.

Bæjarstjórinn á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson (t.h.), og Peter Grönvold Samuelsen opnuðu með táknrænum hætti hin nýju flugleið milli Íslands og Danmerkur.
Flogið verður milli Kaupmannahafnar og Akureyrar tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum. Farið er frá Kaupmannahöfn kl. 9.45 að staðartíma og lent á Akureyri kl. 10.45. Frá Akureyri er farið kl. 12 á hádegi og lent í Kaupmannahöfn kl. 16.45 að staðartíma. Í tilefni af fyrsta fluginu var ákveðið að bjóða fargjaldið á leiðinni Akureyri Kaupmannahöfn á 14.900 krónur í maí og fram í miðjan júní. "Þetta lofar góðu," sagði Ragnheiður Jakobsdóttir hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar um útlitið framundan. Hún sagði að flugið hefði talsvert verið kynnt og viðbrögð verið góð norðan heiða, margir séu vissulega búnir að gera áætlanir varðandi sumarið, en þegar hefðu borist fyrirspurnir frá t.d. starfsmannahópum um ferðir næsta haust. Nauðsynlegar upplýsingar um flugið er að finna á slóðinni www.airgreenland.is en ferðir eru einnig seldar hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar og Terra Nova Sol.

Krakkarnir úr móttökunefndinni fengu að skoða flugstjórnarklefann og "allir þessir takkar" vöktu tæra undrun.
Frétt af www.mbl.is.