Sjónvarpsfólkið í kaffipásu í Grímsey.
Í síðustu viku var sjónvarpsfólk frá þýsku ríkissjónvarpsstöðinni ARD statt í Grímsey við tökur
á heimildaþætti um þorp og bæi við heimskautsbaug. Auk þess að taka upp efni í Grímsey er förinni heitið til Rússlands,
Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Grænlands.
Þættirnir munu fræða áhorfendur um sögu, vísindi, landslag og lifnaðar- og atvinnuhætti staðanna. Afraksturinn verður svo sýndur
í tveimur 45 mínútna löngum þáttum í desember.
Frá ARD komu Klaus Scherer, fréttamaður, Sandra Kotth, myndatökumaður, Kristian Baum, 2. myndatökumaður, Helmut Hansen hljóðmaður og Angela
Andersen framleiðandi.