Sveitarstjórnarkosningar 2022 - kjörskrá

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí næstkomandi. Kjörskrá Akureyrarbæjar liggur frammi til sýnis í Þjónustuveri Akureyrarbæjar að Geislagötu 9, 1. hæð, í Hríseyjarbúðinni í Hrísey og í búðinni í Grímsey frá 22. apríl til og með 13. maí á venjulegum opnunartíma.

Kjörskráin miðast við skráð heimilisfang hjá Þjóðskrá 6. apríl 2022.

Einnig er bent á vefinn www.kosning.is þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvar og hvort einstaklingar eru á kjörskrá.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan