Sundlaug Akureyrar opin á ný eftir verkfall

Sundlaugin á Akureyri hefur verið opnuð á ný eftir verkfall.
Sundlaugin á Akureyri hefur verið opnuð á ný eftir verkfall.

Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur milli BSRB og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og því hefur verkföllum verið frestað. Þjónusta Akureyrarbæjar færist því í eðlilegt horf á ný, eftir því sem við á í dag, og eftir helgina.

Sundlauginn á Akureyri hefur þegar verið opnuð, ferliþjónusta og akstur strætisvagna hefst á ný, malbikunarstöð hefur framleiðslu, verkefni umhverfismiðstöðvar halda áfram að fullum krafti og þjónustuver bæjarins verður opið með venjubundnum hætti á mánudag.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan