Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri frítt í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskólanna.
Fimmtudaginn 6. mars og föstudaginn 7. mars geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar og sundlaugar Akureyrar án endurgjalds.
Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar VMA og MA framvísa nemendaskírteinum.
Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1240 kr. í skíðalyfturnar.
Kortin fást í afgreiðslu Sundlaugar Akureyrar, Hlíðarfjalls og á N1.