Hlíðarfjall á góðviðrisdegi.
Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskólanna. Auk þess er frítt fyrir alla í sund á miðvikudaginn í tengslum við „G-vítamín á þorra.“
Miðvikudaginn 17. febrúar og fimmtudaginn 18. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli og í sundlaugar Akureyrar án endurgjalds.
Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar í VMA og MA framvísa nemendaskírteinum.
Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls og á N1.
Mikilvægt er að kynna sér aðgengi að Hlíðarfjalli m.t.t. sóttvarnareglna áður en fjallið er heimsótt. Allar helstu upplýsingar eru á heimasíðu Hlíðarfjalls
Fáðu þér G-vítamín
Geðhjálp býður upp á 30 skammta af G-vítamíni á þorra, ráðleggingar serm er ætlað að bæta geðheilsu, og miðvikudaginn 17. febrúar er boðið upp á aukaskammtinn „hreyfðu þig daglega.“ Þar af leiðandi bjóða nokkur sveitarfélög, Akureyrarbær þar á meðal, frítt í sund á miðvikudaginn.
Góða skemmtun!
