Gamli bærinn í Laufási.
Gamli bærinn í Laufási opnar dyr sínar upp á gátt laugardagin 1. júní kl. 9 og býður velkomna alla þá gesti, innlenda
og erlenda, sem leggja land undir fót í sumar.
Sunnudaginn 2. júní er tilvalið að gera sér ferð í Laufás því kl. 14 til 16 verður handverksfólk úr
Þjóðháttafélaginu Handraðnum að störfum í Gamla bænum og starfsfólk Pólarhesta kemur með hesta og teymir undir ungum gestum
á flötinni. Ungir sem aldnir geta svo sest niður eftir góðan dag í Kaffi Laufási með þjóðlegt bakkelsi og yndislegt útsýni
yfir fjörðinn.
Gamli bærinn í Laufási er í umsjón Minjasafnsins á Akureyri en í eigu Þjóðminjasafns.
Gamli bærinn í Laufási er opinn í sumar daglega frá kl. 9-17 til 1. september.