Sumarfrístundir á Akureyri - sumarið 2023

Teknar hafa verið saman upplýsingar um það helsta sem verður í boði fyrir börn í frístundastarfi á Akureyri sumarið 2023 og lista með þeim má finna hér.

Fjölbreytileikinn er mikill og meðal þess sem velja má úr eru fjölbreytt námskeið, stuttar fjallgöngur fyrir börn og fjölskyldur, leikjanámskeið, golfskóli, fjallahjólaæfingar, listasmiðjur, dans, sumarlestur og sumarbúðir í nágrenninu.

Listinn er alls ekki tæmandi og eru skipuleggjendur og aðrir sem til þekkja vinsamlega beðnir um að senda inn ábendingu telji þeir að upplýsingar um tilboð til barna vanti í upptalninguna. Það má gera með því að senda línu á skjalasafn[hjá]akureyri.is með nafni námskeiðs/viðburðar ásamt hlekk í nánari upplýsingar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan