Styrktartónleikar fyrir Hetjurnar

Tónlistarmaðurinn Rúnar Eff. Mynd tekin af runar.is.
Tónlistarmaðurinn Rúnar Eff. Mynd tekin af runar.is.

Í tilefni 35 ára afmælis tónlistarmannsins Rúnars Eff mun hann halda tónleika næstkomandi miðvikudag kl. 21.00 í Pakkhúsinu þar sem flutt verður bæði nýtt og gamalt efni eftir Rúnar sem og efni eftir aðra tónlistarmenn.

Ýmsir gestasöngvarar og hljóðfæraleikarar taka þátt og gefa þeir allir vinnu sína en ágóði tónleikanna, sem eru haldnir í samstarfi við Pakkhúsið, rennur óskiptur til Hetjanna, félags langveikra barna á Norðurlandi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan