Strætó keyrir ekki um Kaupvangsstræti

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Skipagötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta Strætisvagnar Akureyrar ekki ekið um Gilið upp á Brekku og verður í staðinn ekið um Glerárgötu og upp Þórunnarstræti.

Akstursleiðir 2 og 4 munu því breytast að þessu leyti. Reiknað er með að Gilið verði lokað í nokkra daga og jafnvel fram á fimmtudag í næstu viku.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan