Stórfelld uppbygging á Dysnesi á teikniborðinu

Mynd: Karl Eskil.
Mynd: Karl Eskil.

Í dag var stofnað félagið Dysnes þróunarfélag ehf. til uppbyggingar, markaðsstarfs og kynningar á Dysnesi við Eyjafjörð sem framtíðarhafnarsvæði vegna þjónustu við námu- og olíuvinnslu fyrir norðan Ísland. Að félaginu standa Eimskip, Mannvit, Slippurinn, Hafnarsamlag Norðurlands og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar mun sjá um daglegan rekstur félagsins og mun Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson veita því forstöðu.

Reiknað er með að framkvæmdir hefjist í áföngum og að fyrsti áfangi hefjist að loknu umhverfismati, sem ráðist verður í. Í tilkynningu frá félaginu segir að heildarfjárfesting á svæðinu geti numið allt að 18 milljörðum á komandi árum.

Á meðfylgjandi mynd eru Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri Slippsins og Þorvaldur L. Sigurjónsson framkvæmdastjóri AFE.
 

Frétt og mynd af www.vikudagur.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan