Reisugildi var haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri síðdegis í gær að viðstöddu fjölmenni. Tilefnið var að húsið er nú orðið fokhelt og gott betur en það. Ráðgert er að starfsemi hefjist í Hofi á vordögum 2009.
Sögu hússins megi rekja aftur til ársins 2003 þegar menntamálaráðherra og bæjarstjórnin á Akureyri undirrituðu samkomulag um byggingu menningarhúss. Í kjölfarið var hrint af stað samkeppni um hönnun hússins og var það tillaga arkitektastofanna Arkþings og Arkitema í Danmörku sem valin var til frekari útfærslu.
Bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, flutti ávarp á reisugildinu og lýsti ánægju sinni með það hvernig til hefur tekist. Hún greindi frá því að allt bendi til þess að Menningarhúsið Hof verði vinsælt til ráðstefnu- og tónleikahalds því nú þegar hafi borist pantanir á sölum þess fyrir haustið 2010.
Eitt af meginmarkmiðum með byggingu hússins var að skapa verðugan ramma um tónlistarlíf á Norðurlandi ásamt ráðstefnu- og sýningarhaldi. Það var því vel við hæfi að framtíðarnotendur hússins kæmu að þessum tímamótum í byggingarsögu hússins en fulltrúar Sinfóníuhljómsveitar norðurlands spiluðu fyrir gesti.

Við þetta tilefni var jafnframt skrifað undir samkomulag KEA og Akureyrarbæjar um afhendingu flygils sem KEA mun festa kaup á og afhenda bænum til afnota í Hofi. Halldór Jóhannsson, framkvæmdarstjóri KEA, segir kaupin á flyglinum vera framlag KEA til þess metnaðarfulla verkefnis sem bygging Mennignarhússins Hofs er og að með þessu vilji KEA leggja sitt af mörkum til að vegur þess verði sem mestur og bestur.
Ávarp Sigrúnar Bjarkar má lesa hér í heild:
Góðir gestir, ágætu iðnaðarmenn
og aðrir sem að þessu verki hafa komið.
Það er að vissu leyti undarleg tilfinning að standa hér í dag í Hofinu okkar sem risið hefur hægt og bítandi, jafnt og þétt, upp úr jörðinni og hefur nú gjörbreytt ásýnd Akureyrar, er strax orðið eitt af kennileitum bæjarins. Þessi kastali – þessi höll sumarlandsins – sem við trúum að muni einnig gjörbreyta öllu mannlífi í höfuðborg hins bjarta norðurs. Er full ástæða til að óska okkur öllum til hamingju með það hvernig til hefur tekist.
Forsaga málsins er sú að ríkisstjórn Íslands ákvað árið 1999 að veita stofnstyrki til uppbyggingar menningarhúsa utan höfuborgarsvæðisins með það að markmiði að bæta þar aðstöðu til menningar- og listastarfsemi og efla um leið þá starfsemi. Á fundi ríkisstjórnar hinn 11. febrúar 2003 var ákveðið að veita einum milljarði kr. til byggingar menningarhúsa á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Skömmu síðar hófust samningaviðræður menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar.
Hinn 7. apríl 2003 undirrituðu Tómas Ingi Olrich, þáverandi menntamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, samkomulag um byggingu menningarhúss á Akureyri. Í samræmi við samkomulagið var skipuð verkefnisstjórn, sem ætlað var að gera tillögu um starfsemi í fyrirhuguðu menningarhúsi og gera rýmisáætlun og tímaáætlun um framkvæmdina í heild sinni.
Verkefnisstjórnin lauk þessu verki í byrjun nóvember 2003 með greinargerð til menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar. Tillögur verkefnisstjórnarinnar voru að farið yrði í hönnunarsamkeppni um húsið og skipuð yrði dómnefnd með aðilum bæði frá ríki og bæ. Keppnistillögum var skilað 5. júlí 2004 og dómnefnd kunngerði niðurstöður sínar 28. ágúst 2004. Alls bárust 33 tillögur og athygli vakti að tillögurnar voru unnar með þátttöku arkitekta í alls 9 löndum.
Ákveðið var að við mat á tillögum yrði höfuðáhersla lögð á byggingarlist, innra fyrirkomulag, hagkvæmni í rekstri, byggingarkostnað, aðgengis- og öryggismál, fyrikomulag á lóð og umhverfisþætti. Tilgangur samkeppninnar var að fá snjallar og raunhæfar tillögur að fallegri byggingu sem fellur vel að umhverfi sínu. Niðurstaða samkeppninnar var að nota og útfæra tillögu arkitektastofanna Arkþings og Arkitema í Danmörku.
Hönnun hússins tók síðan við og húsið tók nokkrum breytingum – eða verulegum breytingum og fór frá því að vera ca 3500 fm að stærð uppí rúma 7000 fm - þá var búið að taka ákvörðun um að bæta tónlistarskólanum við sem og kjallara sem var talið nauðsynlegt vegna grundunar hússins.
Aðalhönnuðir voru eins og áður segir Arkþing og Arkitema. Ásamt teiknistofu Vífils Oddsonar sem sá um burðarþol, VSt annaðist verkfræðilegan undirbúning varðandi jarðvinnu og stálþil, Verkfræðistofa Norðurlands sá um lagnir og loftræslingu, Raftákn um raflagnir og stjórnkerfi og Akustikona um hljóðtæknihönnun og verkfræðistofa Snorra Ingimarssonar um brunahönnun.
Skóflustunga tekin 1. ágúst 2006 og jafnframt þá undiritaður samningur við uppsteypu hússins og klæðningu við Ístak sem hefur unnið þetta verk af myndarskap. Við íbúar Akureyrar höfum fylgst með þessu verki af athygli og það er gaman að rifja upp hvernig hér var umhorfs við skóflustunguna en þá var dreginn hringur sem afmarkaði útlínur hússins og höfðu þá nokkrir á orði við mig að þetta væri allt of lítið hús.
Í nafnasamkeppni sem haldin var í byrjun árs 2007 bárust 338 tillögur að 241 nafni. Álit nefndarinnar var einróma og gerði hún tillögu um að húsið skyldi hljóta nafnið Hof. Tveir skiluðu inn tillögu um nafnið Hof, þau Aðalbjörg Sigmarsdóttir og Heimir Kristinsson.
En hér hafa fjölmargir verktakar lagt hér gjörva hönd á plóg.
Árni Helgason sá um jarðvegsskipti og grundun, Ístak hf um uppsteypu og klæðniingu, Klemenz Jónsson um dúklögn, Völvusteinn um Gifsveggi og föst loft, Blikkrás um loftræsingu, Málningarmiðstöðin um málun, Magnús Gíslason um múverk, Haraldur Helgason um pípulögn, Rafmenn um rafkerfi og útrás um Stálsmíði.
Innivinna hófst nú í janúar og eru verklok áætluð í júní 2009. Fram til þessa hefur framkvæmdin gengið mjög vel, það hefur verið lítið um vinnuslys og verkið á allan hátt gengið samkvæmt áætlun.
Í hofinu okkar kemur til með að verða mjög fjölbreytt starfsemi.
Hér verður tónlistarskólinn á efstu hæðunum en í öðrum rýmum verður meðal annars að finna veitingastað, upplýsingamiðstöð ferðamanna og Akureyrarstofu. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Leikfélagið verða hér með sína viðburði og ég á von á að húsið verði vinsælt til ráðstefnu og fundarhalda. Nú þegar eru farnar að berast pantanir fyrir ráðstefnuhald í Hofi allt fram til haustsins 2010 – í þessum geira er ekki ráð nema í tíma sé tekið.
Ég vil nota tækifærið og þakka bæði hönnuðum, verktökum og þeim sem hér hafa komið að verki kærlega fyrir vel unnin störf. Þið eruð að skapa nýtt kennileiti fyrir Akureyri og þetta hús verður jafnframt minnisvarði um gott handbragð og fagmennsku íslenskra og erlendra fagmanna.
Að endingu óska ég þess að starf ykkar og annarra hér innanhúss gangi að óskum hér eftir sem hingað til. Þið hafið skilað frábæru verki og eins og sagt er, verkið lofar meistarann.