Frá Grímseyjarhöfn. Mynd: Frjðþjófur Helgason.
Bæjarráð Akureyrar hefur sótt um sérstakar aflaheimildir fyrir Hrísey og Grímsey vegna fiskveiðiársins 2013/2014. Á fundi
bæjarráðs í síðustu viku var lagt fram bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu dagsett 11. september 2013 þar sem
fram kemur auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014. Umsóknarfrestur er til 30. september 2013.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að senda inn umsókn vegna Hríseyjar og Grímseyjar.
Ennfremur var lögð fram og samþykkt eftirfarandi bókun:
Alþingi samþykkti þann 25. júní sl. að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir
til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Bæjarráð harmar þá
ákvörðun Byggðastofnunar að taka ekki tillit til Hríseyjar og Grímseyjar þegar ákveðið var að auglýsa eftir samstarfsaðilum
um nýtingu þessara aflaheimilda.
Hrísey og Grímsey standa frammi fyrir miklum vanda t.d. fólksfækkun m.a. vegna samdráttar og skorts á aflaheimildum. Byggðalögin eru
fámenn, atvinnutækifærin fá og byggist búseta þar að stórum eða öllum hluta á sjávarútvegi. Hrísey og
Grímsey eru sem slíkar sérstök atvinnusvæði þótt þær og Akureyrarbær hafi sameinast í eitt sveitarfélag þar sem
ekki er auðvelt eða mögulegt fyrir íbúa að sækja vinnu út fyrir svæðið.
Fundargerð bæjarráðs frá 26. september.