Slökkvilið Akureyrar kallað út 4.171 sinni árið 2024

Mynd af heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar.
Mynd af heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar.

Slökkvilið Akureyrar var kallað út 4.171 sinni árið 2024 að því er fram kemur í nýbirtri samantekt á heimasíðu liðsins.

Varðliðið sinnti 3.066 sjúkraflutningum á landi árið 2024 en af þeim voru 29% útkalla í forgangi F1 og F2. Farið var í 282 flutninga út fyrir starfssvæði liðsins og er það aukning um 38% frá árinu 2023. Fækkun var á útköllum vegna erlendra ferðamanna milli ára um 14%.

Sjúkraflugið er stór hluti af starfsemi liðsins en farið var í 943 sjúkraflug á árinu 2024 með 973 sjúklinga. Það er aukning um 3% á milli ára. Um 44% ferða sjúkraflugsins árið 2024 voru í forgangi F1 og F2. Í 6,4% tilfella var flogið með gjörgæslusjúkling og í 7% tilfella var flogið með fleiri en einn sjúkling. Alls var flogið með 33 sjúklinga í 30 flugferðum þar sem upphafs- eða áfangastaður flugs var utan landsteina Íslands.

Dælubílar voru kallaðir út 162 sinnum árið 2024 og er það 17% aukning frá árinu 2023.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan