Skrifað undir samninga um gerð Vaðlaheiðarganga

Frá undirritun samninganna. Mynd: Ragnar Hólm.
Frá undirritun samninganna. Mynd: Ragnar Hólm.

Síðdegis var skrifað undir samninga um gerð Vaðlaheiðarganga og um eftirlit með framkvæmdinni. IAV og svissneska fyrirtækið Matri áttu lægsta tilboðið en áætlaður kostnaður í dag er um 11,5 milljarðar króna. Tilboð Geotek og Eflu í eftirlit með framkvæmdinni hljóðaði upp á rúmlega 420 milljónir króna.

Vaðlaheiðargöng verða 7,5 kílómetra löng með vegskálum beggja vegna. Göngin munu stytta hringveginn um 16 kílómetra og áætluð umferð við opnun ganganna er um 1.400 bílar á sólarhring.

Vinna hefst strax við undirbúning framkvæmda en reiknað er með að byrjað verði að sprengja í vor Eyjafjarðarmegin en á næsta ári úr Fnjóskadal. Verklok eru áætluð árið 2016.

Frétt af www.vikudagur.is.

Á meðfylgjandi mynd frá undirritun samninganna í dag eru frá vinstri: Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra, Kristján L. Möller fyrrverandi samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan