Skógarlundur er lokaður milli Dalsbrautar og Espilundar og má reikna með að svo verði alla næstu viku. Á mánudag verður miðbærinn að hluta lokaður fyrir allri umferð en vonast er til að hægt verði að opna göturnar aftur undir lok næstu viku eða föstudaginn 27. október.
Lokun í Skógarlundi er til komin vegna þess að þar er nú unnið að bættu öryggi gangandi vegfarenda með endurgerð á gangbraut austan hringtorgsins við Dalsbraut. Þar kemur hraðahindrun sem er um leið hækkuð gangbraut í sömu hæð og göngustígurinn meðfram Dalsbraut. Hjáleið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verður yfir Skógarlundinn meðan á framkvæmdum stendur (sem sjá má á meðfylgjandi mynd).

Í miðbænum verður það sem kallað hefur verið "gamli rúnturinn" lokaður, þ.e.a.s. akstursleiðin sunnan Ráðhústorgs og hlutar Strandgötu, Skipagötu og Túngötu. Er þetta nauðsynlegt vegna endurnýjunar á yfirborði gatnanna. Þessi lokun tekur gildi mánudagsmorguninn 23. október.
Um leið og gamla rúntinum er lokað, lokast í raun Hafnarstrætið til norðurs frá horninu við Pennan/Eymundsson. Aðkoma fyrir hreyfihamlaðra, bráðaliða og vegna vörulosunar verður um Brekkugötu meðan á framkvæmdum stendur.
