Skipulagslýsing fyrir deiliskipulag Verkmenntaskólans á Akureyri

Unnið er að gerð deiliskipulags fyrir Verkmenntaskólann á Akureyri. Skipulagslýsingin liggur frammi í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og er aðgengileg hér fyrir neðan:

Skipulagslýsing fyrir deiliskipulag Verkmenntaskólans á Akureyri.

Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagsdeildar í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið: skipulagsdeild@akureyri.is innan tveggja vikna frá auglýsingu þessari.

13. mars 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan