Þó svo að Japansferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafi verið aflýst eins og fram hefur komið er engan bilbug að finna á hljómsveitinni. Nú hefur verið sett saman metnaðarfull verkefnaskrá fyrir næstu vikur þar sem hljómsveitin verður á faraldsfæti um Ísland.
Tveir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar syngja og leika með hljómsveitinni á þessum tónleikum og stjórnandi verður Petri Sakari.
Laugardaginn 1. nóvember kl. 17 verða stórtónleikar í Háskólabíói. Þar leiða saman hesta sína hljómsveitin og stórtenórinn Kristján Jóhannsson. Það eru átta ár síðan Kristján söng síðast með hljómsveitinni og því kærkomið tækifæri til að njóta listar stórsöngvarans, sem vitaskuld er óþarfi að kynna frekar.
Á efnisskránni eru íslenskar söngperlur og frægar aríur eftir Puccini og Leoncavallo. AUk þess verður leikin fimmta sinfónía Beethovens, karnivalforleikur Dvoráks og tveir kaflar úr hinni ástsælu tónlist Griegs við Pétur Gaut.
Strax eftir helgina heldur hljómsveitin í tónleikaferð úr fyrir höfuðborgina, þótt leiðin verði ekki eins löng og áður var gert ráð fyrir. Þriðjudaginn 4. nóvember verður hljómsveitin ásamt Kristjáni Jóhannssyni á Akureyri og leikur sömu efnisskrá og á tónleikunum í Háskólabíói í íþróttahúsi Síðuskóla.
Líkt og í Háskólabíói verður miðaverð á tónleikana á Akureyri aðeins 1.000 kr. Þeir tónleikar hefjast kl. 20.00.
Miðasala verður við innganginn, en einnig er hægt að tryggja sér miða á www.sinfonia.is eða í síma 545 2500.