Nyrsti hluti Síðubrautar lokaður vegna framkvæmda við hitaveitu

Nyrsta hluta Síðubrautar var lokað kl. 15.00 í dag og verður hann lokaður fram að morgni fimmtudagsins 23. nóvember (sjá mynd).

Nauðsynlegt er að loka þessum kafla við hringtorgið að Hörgárbraut vegna lagningar hitaveitu, svokallaðrar Hjalteyrarlagnar. Hjáleið er niður að Hlíðarbraut og upp Austursíðu.  Innkeyrsluhjáleið verður hjá bensínstöð ÓB.

Norðurorka biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda vegfarendum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan