Síðubraut, lóð fyrir dreifistöð -?Tillaga að deiliskipulagi - Lokið

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi.

Skipulagssvæðið afmarkast af landamörkum Hlíðarenda í vestri, Hlíðarfjallsvegi í suðri og Síðubraut í austri. Tillagan gerir ráð fyrir lóð, með aðkomu frá Síðubraut og byggingarreit fyrir dreifistöð raforku. Reiðstígur liggur vestast á skipulagssvæðinu og liggur undir Hlíðarfjallsveg í undirgöngum.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 28. apríl til 9. júní 2011, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.

Síðubraut - tillaga að deiliskipulagi

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 fimmtudaginn 9. júní 2011 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

 

28. apríl 2011
 Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan