Sandur til hálkuvarna víða um bæinn

Skjáskot úr Kortasjá sem sýnir hvar sandkisturnar eru.
Skjáskot úr Kortasjá sem sýnir hvar sandkisturnar eru.

Nú er víða fljúgandi hálka í bænum og eru bæjarbúar og gestir beðnir að fara varlega.

Starfsmenn umhverfismiðstöðvar Akureyrarbæjar hafa sett haug af grófum saltblönduðum sandi á jörðina eða í sérstakar sandkistur víða um bæinn og er fólki frjálst að nota þennan sand til hálkuvarna.

Í kortasjá Akureyrarbæjar má finna þessar kistur með því að smella á "Vetrarþjónustu" í valmynd til hægri og velja þar "Sandkistur."

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan