Samráðsfundur um umferðaröryggisáætlun

Áætlað er að umferðaröryggisáætlunin verði tilbúin á vormánuðum 2025. 
Áætlað er að umferðaröryggisáætlunin verði tilbúin á vormánuðum 2025. 
Akureyrarbær vinnur að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið með það að markmiði að auka öryggi í bænum, fækka slysum og auka lífsgæði bæjarbúa sem og annarra sem um bæinn ferðast.
 
Í gær, miðvikudag, fór fram samráðsfundur í Ráðhúsinu þar sem saman komu fulltrúar frá lögreglu, Samgöngustofu, Vegagerðinni, foreldrafélögum og öðrum hagsmunahópum. Tilgangur fundarins var að móta stefnu umferðaröryggisáætlunarinnar og fá yfirlit á stöðu umferðaröryggismála á Akureyri. Berglind Hallgrímsdóttir, fulltrúi frá ráðgjafafyrirtækinu EFLU, kynnti verkefnið og í kjölfarið sköpuðust virkar umræður.
 
Íbúar hafa komið ábendingum sínum á framfæri í gegnum sérstaka ábendingargátt, sem nú hefur verið lokað. Alls bárust 656 ábendingar. Jafnframt hafa skólarnir fengið senda stafræna könnun þar sem börn merkja inn gönguleiðir sínar í skólann og staði sem þau sem upplifa sem hættulega.
 
Áætlað er að umferðaröryggisáætlunin verði tilbúin á vormánuðum 2025.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan