Rödd þjóðar

Pétur Kristján og Helgi Guðmundssynir.
Pétur Kristján og Helgi Guðmundssynir.
Halldór Gunnar Pálsson, Önfirðingur og kórstjóri Fjallabræðra, vinnur um þessar mundir að því að fá um 30.000 manns til að syngja inn á lag sem hann hefur verið að vinna fyrir Fjallabræður. Halldór Gunnar ætlar að taka upp í Hofi laugardaginn 21. apríl kl. 13.
 
Lagið er stórt og mikið, hefur hlotið nafnið Ísland, og eru margir sem koma að flutningi þess, þ.á m. Fjallabræður, hljómsveit Fjallabræðra, Unnur Birna Björnsdóttir og lúðrasveit Vestmannaeyja. Halldór Gunnar samdi lagið en textann samdi Jökull Jörgensen. Einsöng í laginu syngur Unnur Birna Björnsdóttir sem einnig kom að því að semja lagið.
 
En hvernig ætlar hann að fara að því að fanga „Rödd þjóðarinnar“? „Það er einfalt, ég ætla að keyra hringinn í kringum landið, stoppa á fyrirfram ákveðnum stöðum sem ég verð búinn að hafa samband við og safna fólki saman til að láta það syngja. Og að ferðalaginu loknu verður öllum upptökum blandað saman til að mynda einn risastóran kór - rödd þjóðarinnar.“
 
„Á hverjum stað sem ég heimsæki verður opið hús þar sem upptökur fara fram. Kafli lagsins er einfaldur og fljótlærður og mun það ekki taka langan tíma að kenna sönglínuna og taka hana upp,“ segir Halldór Gunnar.
 
Markmiðið með þessu öllu saman er að reyna að sameina þjóðina í söng. Það er alveg klikkað ef heil þjóð tekur sig saman í söng, það hlýtur bara að vera einsdæmi. Að verkefninu loknu verður lagið og myndbandið gert aðgengilegt öllum að kostnaðarlausu á vefsíðu verkefnisins sem verið er að vinna að.
 

Nú er komið að því að Halldór mæti á Norðurlandið en viðkomustaður hans á Akureyri verður aðalsalur Hofs, Hamraborg, næstkomandi laugardag kl. 13. Við hvetjum sem flesta til þess að mæta og hugsanlega setja met í fjölda söngvara á sviðinu í Hofi!

Allir geta tekið þátt í gleðinni. Hvað ætli margir söngvarar mæti í Hof?

Allt um verkefnið má finna á heimasíðunni www.thjodlag.is og á facebook.

Eins má sjá skemmtilega umfjöllun Kastljóssins hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan