Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta áætluð jákvæð um 493 milljónir árið 2024

Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árin 2024-2027 var lögð fram til síðari umræðu í bæjarstjórn og samþykkt þriðjudaginn 5. desember.

Rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A- og B-hluta) árið 2024 er áætluð jákvæð um 493 milljónir króna en neikvæð um 407 m.kr. í A-hluta. Áætlun gerir ráð fyrir batnandi rekstrarafkomu og að jafnvægi í rekstri bæjarsjóðs verði náð árið 2027.

Líkt og áður fer stærstur hluti útgjalda sveitarfélagsins til fræðslu- og uppeldismála en áætlað er að verja 11,2 milljörðum króna í málaflokkinn á komandi ári. Málaflokkur félagsþjónustu mun kosta 5,9 milljarða króna og þar á eftir kemur málaflokkur æskulýðs- og íþróttamála sem tekur til sín tæplega 3 milljarða króna.

Útsvarsprósenta verður óbreytt, 14,74 %, og álagningarprósentur fasteignaskatts eru sömuleiðis óbreyttar frá árinu 2023.

Gjaldskrár leikskóla og frístundar í grunnskólum verða tekjutengdar frá áramótum og eru foreldar og forráðamenn hvattir til að sækja um afslátt sem byggir á skattframtali 2023 vegna tekna 2022.

Breytingar verða á gjaldskrá leikskóla þar sem skólatími milli 8 og 14 er gjaldfrjáls en skólagjald er innheimt fyrir tíma umfram það. Aðrar gjaldskár hækka almennt um 9% vegna verðlagsþróunar.

Áætlað er að skuldaviðmið sveitarfélagsins (A- og B- hluta) í árslok 2024 verði 93,7%. Veltufjárhlutfall samstæðunnar er áætlað 1,07 í árslok 2024. Framkvæmdir eru áætlaðar 5,3 milljaðar á árinu 2024 og tæplega 20,2 milljaðar á áætlunartímabilinu. Lántaka á árinu 2024 er áætluð 2,5 milljaðar króna í samstæðunni en 1,1 milljarður í A-hluta. Áætlað er Akureyrarbær taki 8,3 milljaða króna að láni á næstu fjórum árum sem er einum milljarði umfram afborganir af langtímalánum yfir sama tímabil.

Uppbygging íþróttamannvirkja er fyrirferðarmikil í framkvæmdaáætlun en alls er gert ráð fyrir að verja til hennar tæplega 3,3 milljörðum króna. Keppnisvöllur á KA-svæði, stúka og félagsaðstaða, kosta tæplega 2,2 milljarða, og uppbygging á Þórsvelli og endurbætur í Boganum eru áætlaðar rúmlega 700 milljónir. Endurbætur verða gerðar á innilaug Sundlaugar Akureyrar og klórkerfi sett upp á næsta ári. Endurbætur við Glerárskóla halda áfram og leikskóli í Hagahverfi er á áætlun 2025-2026.

Tveir nýir búsetukjarnar verða teknir í notkun á næstu árum. Framkvæmdir í Hafnarstræti ganga vel og eru verklok áætluð síðla næsta árs. Nonnahagi verður væntanlega tilbúinn árið 2024. Stefnt er að því að fjölga leiguíbúðum, sérstök áhersla er á sértæk úrræði og áfram mun Akureyrarbær veita stofnframlög. Stofnframlög eru veitt til óhagnaðardrifinna félaga sem reisa íbúðir fyrir öryrkja og tekjulágt fólk.

Metnaðarfullar áætlanir eru í framkvæmdum Hafnasamlags Norðurlands við Torfunef og mun nýtt þjónustuhús rísa árið 2026. Hafnarsamlagið mun vinna að rafvæðingu minni skemmtiferðaskipa og uppbyggingu fyrir líforkuver á Dysnesi. Norðurorka áætlar að 1,9 milljörðum króna verði veitt í framkvæmdir á næsta ári og þar af er tæplega helmingur vegna hitaveitukerfis.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2024-2027

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan