Reiknivél fasteignagjalda á heimasíðunni

Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Nú líður að því að álagning fasteignagjalda verði birt í þjónustugátt Akureyrarbæjar en fyrsti gjalddagi er um næstu mánaðamót. Hægt er að grennslast fyrir um álagninguna með því að nota til þess gerða reiknivél á heimasíðunni.

Gjöldin skiptast á átta gjalddaga, frá 3. febrúar til 3. september og er eindagi 30 dögum eftir gjalddaga. Tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er veittur afsláttur af fasteignagjöldum samkvæmt reglum sem eru endurskoðaðar árlega. Afsláttur reiknast sjálfkrafa á þá aðila sem eru undir tekjumörkum.

Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrsþegum 2024

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan