Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Mikið fjölmenni sótti málþing um myglu og rakaskemmdir í byggingum sem haldið var á Akureyri á dögunum. Flutt voru mörg
fróðleg erindi miklar umræður sköpuðust í pallborðsumræðum.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur, fjallaði um óboðna sveppi í íslenskum húsum. Hún sagði
frá nokkrum tegundum smásveppa sem gjarnan vaxa innanhúss og þeirri fjölbreyttu fungu sem finna má á smábút af blautu byggingarefni.
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, BSc í líffræði, sagði m.a. frá reynslu sinni í baráttunni við sveppi og kynnti
kostnaðartölur sem þessi vágestur hefur í för með sér og heimfærði tölur frá öðrum löndum yfir á
Ísland.
Jón Guðmundsson, fagstjóri byggingarsviðs Mannvirkjastofnunar og Björn Marteinsson, sérfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð,
fjölluðu um mikilvægi þess að loftræsting í mannvirkjum sé fullnægjandi. Þeir segja rannsóknir skorta á umfangi heilsuvanda
tengdum rakaskemmdum og ræddu hvaða hagfræðilegu áhrif slík vandamál geta haft. Þeir segja ljóst að betri úrræði vanti fyrir
fólk og óljóst til hvaða stofnana fólk geti leitað sem lendir í slíkum hremmingum.
Erindi Þóreyjar Agnarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, snerist um raka og myglu í byggingum, heilsu, hollustu og
aðgerðir. Þórey rakti hvernig mál sem berast eftirlitinu eru meðhöndluð.
Að lokum sagði Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir, frá sinni eigin reynslu af rakaskemmdu húsnæði á Landspítala við
Hringbraut. Eftir að hafa leitað til ótal kollega, tekið sýklalyf í næstum 7 mánuði og gengist undir skurðaðgerð á ennisholum kom
í ljós að orsökin var rakaskemmt vinnuhúsnæði. Tómas tók fram að efla þyrfti fræðslu lækna og læknanema um
þessi vandamál og kallaði eftir vitundarvakningu enda meðferð flóknari en hefðbundin sýklalyf og sterar.
Nánar á heimasíðu Samtaka iðnaðarins.