Rafrænn kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð 19. október

Seinni kynningarfundur Uppbyggingarsjóðs verður í hádeginu á morgun 19. október 2022 kl. 12.15-13.00.

Kynningin fer fram í gegnum Teams-fjarfund og fá skráðir þátttakendur sent fundarboð. Vinsamlegast athugið að skrá ykkur fyrir kl. 10 miðvikudaginn 19. október til að tryggja að fundarboð berist á tilsettum tíma.

Smelltu hér til að skrá þig: https://forms.office.com/r/X9Rbpg04nM

Fundurinn hefst á kynningu á Uppbyggingarsjóði, þá er farið í gegnum hagnýt ráð við umsóknarskrifin, verklagsreglur ræddar og fleira. Opið verður fyrir spurningar á meðan á fundi stendur. Fundurinn verður ekki tekinn upp.

Opið var fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra miðvikudaginn 12. október sl. og verður hægt að sækja um til kl. 13.00 fimmtudaginn 17. nóvember.

Úthlutun fer fram í lok janúar 2023. Veittir eru styrir í eftirfarandi þremur flokkum:

  • Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir á sviði menningar
  • Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Sjá nánar HÉR.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan