Öflugir plokkarar geta safnað miklu magni af rusli. Ljósmynd frá 2020: Susanne Lieske
Stóri plokkdagurinn verður haldinn næsta laugardag, 24. apríl, og þá eru Akureyringar og landsmenn allir hvattir til að tína (plokka) rusl.
Nú er frábær tími til að hreinsa bæinn okkar og koma honum í sparifötin fyrir sumarið, enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hopar á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska.
Í Facebook-hópnum Plokk á Akureyri er tilvalið að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur með máli og myndum.
Afrakstur plokksins má skilja eftir í sérstökum gámum sem settir verða við allar grenndarstöðvar um helgina.
Stjórnendur og starfsfólk stofnana og fyrirtækja á Akureyri eru hvattir til að plokka í kringum sína vinnustaði í vikunni og hiti þannig upp fyrir stóra daginn.
Nokkur góð ráð:
-Plokkum og hreyfum okkur í leiðinni – æfing dagsins
-Klæðum okkur eftir veðri
-Notum hanska og tangir ef þær eru til
-Virkjum alla fjölskylduna, vini og nágranna en hver á sínum hraða.
-Virðum fjarlægðarmörk.
