Orlofsbyggð norðan Kjarnalundar – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi.

Skipulagssvæðið afmarkast af Kjarnaskógi og lóðum Kjarnalundar til suðurs, óbyggðu íbúðarsvæði til vesturs, gili á opnu svæði til norðurs og fyrirhugaðri tengibraut á óbyggðu svæði til austurs. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun frístundabyggðarinnar til vesturs.

Tillagan fellur undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgir henni umhverfisskýrsla.

Hægt er að nálgast tillöguuppdrátt ásamt greinargerð hér að neðan sem einnig munu liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 4. september til 16. október 2013 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

 

Skipulagsuppdráttur

Skýringaruppdráttur

Greinargerð

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 16. október 2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

4. september 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan