Á sýningunni Norðurland 2005, sem haldin var í Íþróttahöllinni 13.-15. maí sl.,opnaði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-og viðskiptaráðherra, nýjan vef Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi undir vefslóðinni www.nordurland.is.
Á vefsíðunni er að finna helstu upplýsingar um ferðamöguleika, afþreyingu og annað sem þarf til að skipuleggja ferð um Norðurland. Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi er í eigu ferðamálasamtaka Norðurlands eystra og Norðurlands vestra og starfar fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og sveitarfélög á Norðurlandi. Helsta hlutverk hennar er að samræma og sjá um almenna kynningu á Norðurlandi sem ferðamannasvæði í samvinnnu við ferðaþjónustufyrirtækin. Framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofunnar er Kjartan Lárusson.
