Eftir vandlega yfirlegu og skoðun á aðstæðum í Hlíðarfjalli hefur verið ákveðið að seinka opnun skíðasvæðisins um viku vegna snjóleysis.
Síðastliðna mánuði hefur starfsfólk unnið hörðum höndum að því að undirbúa vetraropnun og stefnt var að því að opna svæðið fyrir skíðafólki föstudaginn 15. desember. Því miður hefur vetur konungur lítið látið á sér bera og þrátt fyrir kuldatíð er ljóst að töluvert meiri snjó þarf til þess að hægt sé að opna skíðasvæðið. Eftir að hafa farið vandlega yfir aðstæður og horfur næstu daga, hefur verið ákveðið að seinka opnun til föstudagsins 22. desember. Snjóframleiðsla verður keyrð á fullu næstu daga ef aðstæður leyfa og starfsfólk Hlíðarfjalls leggst á bæn um að fá "hvíta gullið" sem fyrst af himnum ofan.
Forsala vetrarkorta hefur verið framlengd til 5. janúar og er nú í fullum gangi. Afgreiðslan verður opin fyrir sölu vetrarkorta föstudaginn 15. desember frá kl. 10-16, laugardaginn 16. desember frá kl. 10-12.30 og alla næstu viku frá kl. 16-19. Spenntum skíðagestum er því velkomið að koma upp að Skíðastöðum og undirbúa sín kort fyrir veturinn og þar með vera tilbúið í brekkurnar um leið og opnar.
Gönguskíðasvæðið verður áfram opið eins og aðstæður leyfa en þar hafa aðstæður undanfarið verið góðar og fjöldi fólks nýtt sér það. Fólki er bent á að fylgjast nánar með opnun gönguskíðabrauta á
heimasíðu Hlíðarfjalls.
Nánar um aðstæður í fjallinu: Í dag, miðvikudaginn 13. desember, er hiti yfir frostmarki á svæðinu og veðurspá breytileg fyrir næstu daga. Útlit er fyrir kulda aftur um helgina. Snjóframleiðsla hefur gengið vel síðustu vikur og hver klukkutími nýttur í frostinu til framleiðslu. Snjóframleiðslan verður áfram í algjörum forgangi og hefst aftur af fullum krafti um leið og frystir nóg. Starfsfólk heldur áfram að meta aðstæður dag frá degi með það að markmiði að opna sem fyrst. Allt verður gert til þess að festa meiri snjó í fjallinu. Staðan er einfaldlega sú að snjókoma í fjallinu hefur verið óvenjulega lítil undanfarið og samkvæmt veðurfræðingum hefur úrkoma á Akureyrasvæðinu síðastliðinn mánuð aðeins verið um 40% af því sem venjulega er á þessum árstíma.
Skíðasvæðið er þrátt fyrir allt vel undirbúið fyrir frábæran skíðavetur og ekki þarf mikið til þess að vertíðin geti hafist með glæisbrag.
Við flytjum ykkur góðar kveðjur frá starfsfólki skíðasvæðisins sem vonast til að sjá ykkur öll sem fyrst í brekkunum.