Opnun Menningarhússins Hofs

Á morgun kl. 16:00 verður Menningarhúsið Hof vígt. Glæsileg opnunardagskrá hófst í dag kl. 11:00  með sýningunni Tilraunalandið sem fer fram utan við húsið og að auki verða myndlistarsýningar Guðnýjar Kristmannsdóttur og Myndlistarfélagsins opnaðar síðar í dag. Veitingastaðurinn 1862 Nordic Bistro og Hrím hönnunarhús hefja starfsemi sína í húsinu og deginum lýkur svo með tvennum stórtónleikum Lay Low og norðlenskra tónlistarmanna. 

Dagskrá opnunarhátíðarinnar er fjölbreytt og mun fjöldi listamanna leggja sitt af mörkum til þess að gera opnunardagskrána sem áhugaverðasta og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Dagskrána í heild sinni má sjá HÉR.

Saga HofsHof_august_2010

Árið 1999 ákvað ríkisstjórn Íslands að veita stofnstyrki til uppbyggingar menningarhúsa utan höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að bæta aðstöðu til menningar- og listastarfsemi og efla um leið þá starfsemi. Á fundi ríkisstjórnar 11. febrúar 2003 var ákveðið að veita einum milljarði króna til byggingar menningarhúsa á Akureyri og í Vestmannaeyjum. 7. apríl sama ár undirrituðu Tómas Ingi Olrich, þáverandi menntamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, þáverandi bæjarstjóri á Akureyri, samkomulag um byggingu menningarhúss á Akureyri. Skipuð var verkefnisstjórn, sem gerði tillögu um starfsemi í fyrirhuguðu menningarhúsi. Miðað skyldi við að húsið yrði um 3.500 m² og heildarkostnaður við verkið yrði ekki meiri en 1.200 m.kr. á verðlagi apríl 2003.

Verkefnisstjórnin skilaði greinargerð í byrjun nóvember 2003 til menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar. Í lok greinargerðarinnar var m.a. lagt til að menningarhúsið á Akureyri yrði á uppfyllingunni sunnan Strandgötu og austan Glerárgötu. Að efnt yrði til opinnar samkeppni um hönnun hússins í samræmi við samkeppnisreglur AÍ og að skipuð yrði 5 manna dómnefnd til að sjá um samkeppnina og skila niðurstöðum til menntamálaráðuneytis og Akureyrarbæjar. Í kjölfarið var skipuð dómnefnd til að hrinda þessu verki í framkvæmd. Hönnunarsamkeppni vegna byggingar menningarhúss á Akureyri var svo haldin árið 2004.

Samtals bárust 33 tillögur í samkeppnina en dómnefndin valdi tillögu teiknistofunnar Arkþings í samstarfi við Arkitema. Höfundar völdu hringformið en í gegnum bygginguna liggur einhverskonar ?fljót? eða göngugata sem skiptir húsinu í tvennt. Húsið yrði klætt að utan með íslensku stuðlabergi. Við hönnun menningarhússins kom fram sú hugmynd að bæta við einni hæð og hafa Tónlistarskólann á 3. hæð menningarhússins. Með þessari hugmynd var einkum horft til þess að tónlistarskóli í sömu byggingu myndi glæða menningarhúsið lífi, miklir möguleikar væru á samnýtingu á rými og tónlistarskólinn fengi bestu mögulegu úrlausn. Í framhaldinu voru gerðar áætlanir varðandi stærð og kostnað. Þær gerðu ráð fyrir 1.200 m² auk 600 m² sem koma til með að samnýtast með starfsemi menningarhússins. Skrifað var undir samning við hönnuði hússins að lokinni samkeppni í júní 2005 og var ákveðið að hanna tónlistarskólann samhliða hönnun menningarhúss. Heildarstærð húss var áætluð um 4700 m².

Aðalhönnuður menningarhússins er Arkþing ehf., Bolholti 8, 105 Reykjavík.

Samstarfsaðilar Arkþings voru:

  • Arkitema, Fredriksgade 32, DK-8000 Århus
  • TÓV ehf., Óðinstorgi 7, 101 Reykjavík (burðarþol)
  • VST ehf., Glerárgötu 30, 600 Akureyri (jarðvinna-stálþil)
  • VN ehf., Hofsbót 4, 600 Akureyri (lagnir og loftræsing)
  • Raftákn ehf., Glerárgata 34, 600 Akureyri (raflagnir og stjórnkerfi)
  • Akustikon ab í Svíþjóð í samvinnu við Verkís hf, Ármúla 4, Reykjavík  (hljóðtæknihönnun)

·         VSI ehf., Hamraborg 11, 200 Kópavogur (brunahönnun)

Helstu verktakar voru:

  • Árni Helgason (Jarðvegsskipti og grundun)
  • Ístak hf (Uppsteypa)
  • Rafmenn ehf. (Rafkerfi)
  • Útrás ehf (Stálsmíði)
  • Klemenz Jónsson ehf, (Dúklögn)
  • Völvusteinn ehf (Gifsveggir o.fl.)
  • Blikkrás ehf (Loftræsting)
  • KONE ehf (Lyftur)
  • Málningarmiðstöðin (Málun)
  • Magnús Gíslason ehf (Múrverk)
  • Haraldur Helgason (Pípulögn)

Skóflustunga að Menningarhúsinu var tekin laugardaginn 15. júlí 2006 en framkvæmdir hófust í ágúst 2006. Þegar framkvæmdir við grunn hússins hófust kom fram talsvert sig og einnig seig jarðvegur mishratt og mismikið og var í kjölfarið ákveðið setja kjallara undir allt húsið. Vegna stækkunar á kjallara um 2.300 m² og ýmissa breytinga á hönnunarferli hefur húsið stækkað um 537 m². Breytinguna má skýra m.a. með stækkun á veitingaaðstöðu, verslunarrými, tónlistarskóla og forsal tónlistarsalar ásamt ýmsum öðrum úrbótum sem gerðar voru á hönnunartíma. Forsendur verkefnisins hafa því breyst mikið frá því sem kemur fram í samkeppnisgögnum eins og sést á þessu, brúttó stærð húss hefur farið úr 3.500 m² í 7.413 m².

Í samkeppni um nafn á byggingunni bárust alls 338 tillögur um 241 nafn á húsinu. Dómnefnd sem skipuð var Braga V. Bergmann, ráðgjafa, Margréti Jónsdóttur, leirlistakonu og Sverri Páli Erlendssyni, menntaskólakennara, komst að einróma niðurstöðu um að húsið skyldi hljóta nafnið Hof.

Efni tekið af heimasíðu Menningarhússins Hofs: menningarhus.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan