Opinn íbúafundur

Opinn íbúafundur um nýtt skipulag miðbæjarins verður haldinn í fundarsal á 4. hæð í Ráðhúsi Akureyrar kl. 17 næstkomandi fimmtudag, 27. júní. Hönnuðir miðbæjarskipulagsins eru Logi Már Einarsson, arkitekt hjá Kollgátu ehf., og Ómar Ívarsson, skipulagsfræðingur hjá Landslagi ehf. Á fundinum mun Logi Már kynna skipulagslýsingu og fyrstu drög nýs miðbæjarskipulags. 

Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér fyrstu hugmyndir að nýju miðbæjarskipulagi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan