Ókeypis heilsufarsmæling fyrir 60 ára og eldri

Miðvikudaginn 13. desember frá kl. 14-16 verður boðið upp á ókeypis heilsufarsmælingu fyrir 60 ára og eldri í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Góð heilsa er forsenda þess að geta notið efri áranna við leik og störf. Því er mikilvægt að hugsa vel um heilsuna og gefa gaum að þeim viðvörunarljósum sem kunna að kvikna. Ef eitthvað amar að þá er hægt að grípa strax í taumana til að tryggja farsæld og vellíðan á árunum sem í hönd fara. Því ætti það að vera kærkomið fyrir 60 ára og eldri á Akureyri að komast í ókeypis heilsufarsskoðun og vonandi að sem flestir nýti sér það.

Það eru Akureyrarbær og Heilbrigðisstofnun Norðurlands sem standa að heilsufarsmælingu í Íþróttahöllinni frá kl. 14-16 miðvikudaginn 13. desember.

Allir 60 ára og eldri velkomnir!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan