Breyting á deiliskipulagi – Naustahverfi, 1. áfangi, Hólmatún 1-3 og 5-9.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 2. október 2012 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt
deiliskipulagsbreytingu fyrir Hólmatún 1-3 og 5-9. Breytingin felur í sér að lóðarmörk milli lóðanna færast að hluta til um 1,1 m
til vesturs. Byggingarreitur á lóð nr. 5-9 stækkar um 1,1 m til vesturs.
Breyting á deiliskipulagi – Naustahverfi, 1. áfangi, Vörðutún 2, 4 og 6.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 2. október 2012 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt
deiliskipulagsbreytingu fyrir Vörðutún 2, 4 og 6. Breytingin felur í sér að lóðirnar stækka um 2 m til suðurs.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 3. október 2012,
Anna Bragadóttir,
verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 18. október 2012