Nr. 806/2012 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti

Breyting á deiliskipulagi tjaldsvæðisreits við Þórunnarstræti.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. september 2012 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir tjaldsvæðisreit við Þórunnarstræti. Breytingin felur m.a. í sér að lóð og byggingarreitur Þingvallastrætis 23 stækka. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 21. september 2012,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála

B-deild - Útgáfud.: 5. október 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan