Nr. 778/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Gleráreyrar 1-10 og Gránufélagsgata 23 og Norðurgata 11 og 13?

Breyting á deiliskipulagi verksmiðjusvæðisins á Gleráreyrum.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. september 2010 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir verksmiðju­svæðið á Gleráreyrum. Skipulagssvæðið nær til Gleráreyra 1-10 og felst breytingin m.a. í færslu á gatnamótum við Borgarbraut, lóðastærðum og göngustígum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. 

Breyting á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. september 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir suðurhluta Oddeyrar. Breytingin felst í nýjum lóðamörkum milli Gránufélagsgötu 23 og Norðurgötu 11 og 13.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 1. október 2010,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 15. október 2010


 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan