Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. júlí 2013 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
samþykkt deiliskipulag fyrir athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Súluveg, Miðhúsabraut og Þingvallastræti.
Deiliskipulagið felur m.a. í sér að nýir landnotkunarreitir eru afmarkaðir við gatnamót Miðhúsabrautar og Súluvegar fyrir athafna-,
verslunar- og þjónustusvæði. Breyting er gerð á tengingu Miðhúsabrautar og Þingvallastrætis. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið
þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 7. ágúst 2013,
Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 7. ágúst 2013