Nr. 695/2012 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 vegna umferðartenginga við KA-svæðið og Lundarskóla.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 26. júlí 2012 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 sem samþykkt var í bæjarráði Akureyrarkaupstaðar þann 5. júlí 2012. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 11. júlí 2012. Breytingin felur í sér að heimilt er að tengja Dalsbraut við íþróttasvæði KA og Lundar­skóla. Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 26. júlí 2012.

F.h. forstjóra,

Hafdís Hafliðadóttir.

Birna Björk Árnadóttir.

B-deild - Útgáfud.: 10. ágúst 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan