Nr. 603/2012 Auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting - Hólmatún 1-3 og 5-9.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi 1. áfanga, Hólmatún 1-3 og 5-9 þann 8. maí 2012 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að í stað tveggja hæða verslunar- og þjónustuhúss og fjögurra hæða fjölbýlishúss með 25-30 íbúðum, koma fimm tveggja hæða fjölbýlishús, hvert með fjórum íbúðum, alls 20 íbúðir.

Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 25. júní 2012,

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild – Útgáfud.: 10. júlí 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan