nr. 461 Auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á afmörkun deiliskipulags miðbæjar, Drottningarbrautarreitur

 Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. mars 2012 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir deiliskipulag miðbæjar, Drottningarbrautarreit og breytingu á afmörkun deiliskipulags miðbæjar.

Í tillögunni fyrir Drottningarbrautarreitinn er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða, verslunar, þjónustu og stofnana. Nýjar íbúðir verða meðfram Drottningarbraut og við Hafnarstræti. Einnig er gert ráð fyrir hótelbyggingu syðst á reitnum og nýrri aðkomugötu, húsagötu, samsíða Drottningar-braut. Jafnframt er gerð breyting á afmörkun deiliskipulags miðbæjar vegna skörunar við deili-skipulag innbæjar sem nú er í endurskoðun.

Deiliskipulagsbreytingarnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild – Útgáfud.: 29. maí 2012

 

 

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan