Breyting á deiliskipulagi fyrir Akureyrarflugvöll.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. janúar 2011 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Akureyrarflugvöll.
Breytingin felur m.a. í sér stækkun flugstöðvarbyggingar, nýtt flughlað og breytingu á byggingarreit og lóðarmörkum fyrir vöruskemmur. Breytingar eru gerðar á flugbraut og minniháttar stækkanir eru á landfyllingum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
Deiliskipulag hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 1. febrúar 2011 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir hjúkrunarheimili við Vestursíðu 9.
Skipulagið felur í sér að skilgreind er 16.340 m² lóð fyrir hjúkrunarheimili á einni hæð. Hámarksbyggingarmagn innan byggingarreits er 3.595 m².
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 18. febrúar 2011,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 21. febrúar 2011