Skipulagsstofnun staðfesti þann 16. nóvember 2011 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar þann 18. október 2011.
Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 9. nóvember 2011. Breytingin felst í að hafnarsvæði við Torfunef er stækkað um 170 m².
Heildarflatarmál hafnarsvæðis er fært í yfirlitstöflu í greinargerð aðalskipulagsins.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 16. nóvember 2011.
Stefán Thors.
Erna Hrönn Geirsdóttir.
B-deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2011