Niðurstaða bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar í skipulagsmálum

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. febrúar 2013 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, vegna svæðis fyrir þjónustustofnanir og íbúðasvæði í Giljahverfi og breytingu á deiliskipulagi Giljahverfis og deiliskipulagi Borgarbrautar - Vestursíðu.

Breytingarnar fela m.a. í sér að gert er ráð fyrir hringtorgi á gatnamótum Bugðusíðu og Borgarbrautar, nýrri lóð sunnan Borgarbrautar með aðkomu frá hringtorgi og  stækkun á lóð Giljaskóla.

Tillögur að breytingum voru auglýstar samhliða frá 28. nóvember 2012 til 9. janúar 2013. Alls bárust 8 athugasemdir. Bæjarstjórn hefur afgreitt þær og sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn sína. Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga. Leiðrétt hljóðskýrsla barst eftir að athugasemdarfresti lauk sem hafði áhrif á þörf fyrir hljóðvarnir og var gerð breyting á skipulagsgögnum til samræmis.

Skipulagstillögurnar hafa verið sendar Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindanna.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar, Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

13. febrúar 2013

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan